Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hjá Sýslumanninum á Norðurlandi vestra

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar stendur yfir hjá sýslumönnum vegna kosninga um sameiningu sveitarfélaganna Blönduósbær og Húnavatnshreppur annars vegar og Sveitarfélagið Skagafjörður og Akrahreppur hins vegar, á auglýstum afgreiðslutíma á hverjum stað fram að kjördegi.

Greiða má atkvæði utan kjörfundar á skrifstofum Sýslumannsins á Norðurlandi vestra sem hér segir:

  • Blönduósi, aðalskrifstofu, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, virka daga, kl. 09:00 til 15:00
  • Sauðárkróki, sýsluskrifstofu, Suðurgötu 1, Sauðárkróki, virka daga, kl. 09:00 til 15:00

Miðvikudaginn 16. febrúar nk. verður opið til kl. 19:00 á báðum skrifstofum embættisins.

Ósk um atkvæðagreiðslu í heimahúsi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar skal hafa borist sýslumanni á sérstöku eyðublaði eigi síðar en kl.10.00 fimmtudaginn 17. febrúar nk. Eyðublaðið má nálgast á vef sýslumanna, www.syslumenn.is

Þeir, sem að fyrirmælum sóttvarnayfirvalda eru í einangrun fram yfir kjördag, geta beint óskum um kosningu til embættisins fram til kl. 13:00 þann 19. febrúar nk. Beiðni um kosningu skal fylgja staðfesting sóttvarnayfirvalda á því að einangrun vari fram yfir kjördag.

Beiðnum skv. framangreindu um atkvæðagreiðslu í heimahúsi og kosningu vegna einangrunar skal beint á aðalnetfang embættisins, nordurlandvestra@syslumenn.is

Kjósendur skulu framvísa persónuskilríkjum við kosninguna.

Blönduósi, 15. febrúar 2022

Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra